Gústablogg

Velkominn

31.08.2007 16:07:11 / gusti

Séð og heyrt- eru þið ekki að grínast

Dorrit er Díana okkar Íslendinga......... NEI.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 16:42:01 / gusti

.....hvar er nú hann Binni kantur?

Ég veit um fátt skemmtilegra en að keyra um íslenskar sveitir á þessum árstíma. Nýsleginn túnin blasa við manni eins langt og þau ná og fjöllin taka við. Maður er ekki undrandi að Gunnar á Hlíðarenda hafi neitað að yfirgefa landið á þessum árstíma, en hann sagði eitthvað á þá leið að fögur væri hlíðin..slegin tún og bleikir akrar. Ég held að Gunnar hafi verið litblindur eins og Emmi sem gat ekki leikið úrslitaleik handan vatna vegna þess að annað liðið var í gulum vestum og hitt í grænum. Þegar sá fyrrnefndi talaði um bleika akra héld ég að þetta hafi skolast til í sögunni og Gunnar hafi átt við lúpínuna sem hefur þakið hlíðina fyrir ofan bæinn og gefið henni fagurt fjölublátt útlit. Hitt er svo annað mál með umferð um landið núna, hvað er fólk að spá að vera ferðast með þessi risa felli/hús/tjald-vagna út um allt land og vera síðan skömmtuð inn í Hvalfjarðargöngin á sunnudegi. Í fyrsta lagi eru þessi ferðahýsi heimskasta fjárfesting sem maður hefur heyrt um. Fólk sem er illa þjakað af flottræfilshætti tekur milljóna króna lán fyrir fellihýsi svo þarf að borga 20-30 þús á mánuði í afborganir allan ársins hring. Af hverju bara ekki leggja þennan pening inná bankabók og ferðast bara með stæl um landið og gista á hóteli. En nei..... Íslendingarnir vilja freka fara á skuldugum jeppunum sínum með enn stærri skuldahala aftan í sér á eitthvað tjaldsvæði, skjálfa heila helgi við að drekka bjór og grilla í lopavettlingum og keyra síðan í halarófu til Reykjavíkur. Þetta hlýtur að vera rosalega gott frí og fólk kemur alveg endurnært í vinnuna daginn eftir. Ég tek ekki þátt í þessari vitleysu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 22:54:58 / gusti

Wild wild west

Nei, nú hringi ég í Jens.... eins og skáldið sagði. Ég verð nú að skrifa aðeins um laun okkar kennara. Þegar ég heyri sérskipaða snillinga í menntunarmálum út í bæ/þorpum vera að tala um að kennarastarfið sé svo þægilegt,: stuttur vinnutími, langt sumarfrí ogsa videre. Hefur þetta fólk ekki komið inní grunnskóla á 21. öldinni. Ef ég þyrfti aðeins að hafa áhyggur af því að troða visku í mannskapinn væri ég sáttur, en kennarastarfið er orðið miklu meira en það.. hvort sem okkur líkar það betur eða ver. Ef einhver var að tala um stuttan vinnudag kannast ég ekkert við slíkt eftir tvær annir starfi. Í minnu vinnu er ekki hægt að skreppa 23 sinnum á dag. Ekki er hægt að hanga á netinu og senda tölvupósta til vina og vandamanna. Við erum upptekin af því að vinna 8 TÍMA Á DAG . Sumarfríið styttist og styttist og er næstum orðið jafn langt og það orlof sem hinn venjulegi bankastarfsmaður hefur rétt á. ........og hvað heldur Jón Ásgeir að hann sé hafinn yfir íslenskt réttarkerfi. Djö vitleysa er þetta.

» 9 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 15:56:54 / gusti

Ef væri ég söngvari syngi ég......

Eins og yfirskrift þessarar færslu ber með sér verður þessi færsla um söng. En svo er mál með vexti að á síðustu önn minni í HA tóku ég og Guðmundur Elías bekkjarbróðir minn tónlistarkúrs saman. Fékk sá síðarnefndi 8,5 en hetjutenórinn sjálfur eða sá fyrrnefndi aðeins 8,0. Hef ég aldrei skilið þessa einkunn þangað til núna á föstudaginn s.l. er við Dísa og Embla brugðum okkur til Akureyrar að snúast fyrir jólin.

Á leiðinni heim vorum við að hlusta á tónlist í bílnum og eins og sönnum hetjutenór sæmir með 8,0 á bakinu í tónlist tók ég undir. Þá heyrðist einhver óhljóð úr aftursætinu og er ég hætti söng mínum heyrði ég hátt og skýrt, -pabbi HLUSTA. Vildi elskuleg dóttir mín þá að ég einbeitti mér að því að hlusta frekar en syngja. Ef 2 ára dóttir mín ber skynbragð á það að ég eigi ekki að syngja með þá hlýt ég að vera lélegur söngvari. Eftir þennan bíltúr fór ég að hugsa um þennan tónlistaráfanga og hrósaði happi yfir þessari ágætu einkunn. En af hverju fékk Gummi þá 8,5. Ég eyddi allri helginni í að hugsa um þetta og rifjaði upp þennan áfanga og mundi allt í einu að Gummi söng aldrei neitt, hann mæmaði alltaf, fyrir þá sem ekki hafa tekið áfanga í tónlist þýðir það að hreyfa aðeins varirnar og þykjast syngja. Með öðrum orðum kennaranum fannst betra að horfa uppá Gumma mæma heldur en mig syngja.

Niðurstaða: Ég verð líklega aldrei söngvari.

 

 



Þetta er útvarp Kantrý-bær menningarvitinn við Húnaflóann.


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 14:48:47 / gusti

Ströndin er góð

Nú er kominn tími til að maður bloggi aðeins. Ég fann þörf fyrir að tjá mig hérna á internetinu eftir að hafa horft á landsleik Íslendinga og Letta. Ég horfði á leikinn með öðru auganu ekki vegna þess að ég var upptekinn við eitthvað annað, nei vegna þess að ég grúfði höfuðið á mér ofan í kodda því ég gat varla horft uppá þessa vitleysu.

Réttast væri fyrir Íslendinga að hætta þessu landsliðsbrölti, allavega myndi það bjarga geðheilsunni hjá mörgum knattspyrnuáhugamanninum. Ég tala nú ekki um hjónaböndunum en ekki er maður viðræðu hæfur eftir landsleiki undanfarið. Annan eins aumingjaskap hefur maður ekki séð í háa herrans tíð. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru orðnir bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar samkvæmt íslenskum fjölmiðlum sendu ekki eina sendingu á samherja, Brynjar var hvað eftir annað einn með boltann og gat ekki komið honum á annan íslenskan leikmann skammlaust. Ég verð pirraður við krakkana sem ég þjálfa hérna á Skagaströnd ef þau gefa svona glataðar sendingar. Indriði og Grétar Rafn voru einfaldlega á hælunum, Hermann Hreiðarsson stoppar ekki neinn. Svo það sjá allir að vörnin (og einn miðjumaður) okkar er léleg. Stefán Gíslason sást ekki í leiknum, hefðum alveg geta farið í áhaldahúsið í Riga og fengið lánaða vel stæða keilu og stillt upp á miðjan völlinn. Svo var alveg hægt að gefa boltann útaf eins og senda knöttinn á Hannes Sigurðsson og Kára Árnason. Jói Kalli sem hefur verið þokkalegasti leikmaður landsliðsins undanfarin misseri fann sig ekki. Árni Gautur átti að vera 4. markið og verð ég ekki hissa þó sveitungur minn Jolli hringi og fái mig suður í leikinn á móti Svíþjóð. Rúsínan í þessari bragðvondu pylsu er landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári. Ég les sífellt í blöðum og á netinu hversu frábær knattspyrnumaður hann er. Hann sat svona álíka mikið á bekknum og ég á síðasta tímabili sínu hjá Chelsea og ekki virðist grasið vera grænna í Barcelona. Strákurinn gefur sparkað í bolta, það vita allir en hann verður að sýna það og íslenska landsliðið þarfnast að hann spili sína bestu leiki á móti þjóðum eins og Svíþjóð og Danmörk en fari ekki í fýlu eins og Stelpa á skólaballi sem enginn vill Dansa við. Fyrirliðinn á að drífa sína menn áfram og sína gott fordæmi, ekki hengja haus og fara í fýlu.

Annars er maður nú bara góður, ætla að reyna að vera duglegri að blogga héðan frá Skagaströnd, vöggu kántrýtónlistar á Íslandi.

 

 



Eftir gresjunni kemur maður ríðandi............


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 13:52:23 / gusti

Ja sei sei nei

Kosningarkvöldið síðasta brugðum við okkur ég og spúsa mín okkur á kosningarvöku heim til Emmalings. Mikið var það gaman og mikið af góðu og fallegu fólki. Dýrið og Bjaddni tóku létta syrpu um andann og efnið og þar sem trúmál og dulspeki fékk að finna fyrir skoðanskiptum meistarannna. Gaman af slíkum umræðum í partýum. Seinna það kvöld voru við Bjarni Þór aka Bjaddni aka Bj Cactus (hvaðan kom sú nafngift) að ræða saman á barnum og fengum þessa snilldarhugmynd, en margar snilldar hugmyndirnar hafa einmitt kviknað á barnum. En hugmyndin var sú að stofna körfuknattleikslið fyrir næsta vetur og taka þátt 2. deildinni þar sem margar gamlar stjörnur verða í námi fyrir sunnan næsta vetur og gaman væri að hittast nokkrum sinnum í viku og sprikla og sjálfsögðu keppa. Vil ég að áhugasamir commenti á þetta eða hringi í mig, en inntöku skilyrði eru ströng. Menn verða að geta eitthvað í körfu og vera yfir 167cm á hæð.

Respect for the man in the icecream vane


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 17:34:35 / gusti

Róló

Við feðginin fórum á róló áðan  það var geysilega gaman,  borða pínu sand og svona. Við búum í stúdentablokk og í henni háskólastúdentar sem finnst gaman að skemmta sér, það er gott og blessað ef tónlistinn er góð sem þeir halda fyrir manni vöku með hörku partýum. Róluvöllurinn sem við Embla fórum á í dag er hluti af leikskólanum sem er í blokkinni okkar, en þegar við komum þangað sáum við að skemmtannaglaðir stúdentar höfðu hent bjórdósum niður af svölum og á Róluvöllinn. Þetta er svo mikil heimska og sóðaskapur. Þetta heimska lið veit að börn eru að leika sér í garðinum á daginn. Embla var nú þrátt fyrir þennan sóðaskap í miklu stuði á róluvellinum og ég þurfti að gjöra svo vel að elta hana um allan garðinn.

Talandi um bjór, í þau fá skipti sem ég hef fengið mér bjór og farið út á lífið síðustu misseri  æli ég eins og múkki daginn eftir. Magnið virðist ekki skipta máli, ef ég fæ mér 3-4 eða meira þá er ég bara frá. Gæti alveg eins hringt í heilbrigðisráðherra og pantað flensunna. Einhver gæti sagt að ég sé orðinn aumingi, verði þeim að góðu. Þetta er langt frá því að vera eðlilegt og bið ég alla þá sem geta komið með ráðleggingar að commenta á þetta, því mér finnst obbbbo gaman að fá mér bjór 2-3 á ári í góðra vina hópi og vill alls ekki vera án þess.

 

 



-Sumarið er komið með kjaftfylli af sól.

Bubbi Mortens

 

 



 

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 17:54:34 / gusti

Eymingjar

Já eru Íslendingar að verða algjörir eymingjar? Með yfsilóni. Þetta er spurning sem ég hef verið að spyrja sjálfan mig að síðustu daga en ég hef gert nokkrar rannsóknir. Á hverjum degi sækji ég Dísu í vinnuna, og þar sem við Embla bíðum úti í bíl eftir henni labba inn og út úr í búðinni um 100 manns. Þetta er ágætis úrtak af Íslendingum, það sem hefur komið okkur Emblu mest á óvart (án þess að vera með fordóma) er hvað Íslendingar eru að verða FEITIR. Þriðji hver maður með rassgatið í eftirdragi og lafandi maga niður á hné. Hvað kaupir þetta fólk? Jú auðvitað skíthoppara með frönskum, kóki og brúsa af koktelsósu. Svo fær þetta fólk kransaæðastíflur og guð má vita hvað og skattgreiðendur landsins borga brúsann af þessu koktelsósuveika fólki sem þarf sína umönnun á ódýru sjúkrahúsunum okkar.

Annað sem ég rakst á í morgun þegar ég mætti í afleysingakennslu í Giljaskóla. Krakkar í 5. bekk voru með atriði á sal skólans, mjög gott atriði en enduðu á að nokkrir úr bekknum gripu í hljóðfæri (lofaði góðu) og byrjuðu að spila. Svo tók restin af bekknum undir og söng eitthvað lag á ensku. Já ensku, af hverju ekki eitthvað á okkar fallega móðurmáli. Það eru til svo mörg falleg íslensk lög. -Nú er frost á Fróni hefði verið tilvalið miðað við veðurfarið hérna á Akureyri undanfarna daga. Já ég grét innra með mér yfir að sjá þessa efnilegu nemendur syngja á ensku. Hvar eru þjóðernisvitundin, stoltið og viljinn til að arfleiða mennningu landsins til næstu kynslóðar. Svo fer fólk út í Hagkaup og kaupir koketlsósu. Börnin sem alast upp núna vita ekkert um sögu Íslands né hafa neina landafræðikunnáttu. Þau vita ekki hvað norður og suður er, hvað þá að þau viti hvað fjöllin heita í kringum þau. Ég vorkenni börnum grunnskólabarna í dag, þau verða eitthvað fátæk af visku nema hvernig eigi að svindla í 4. borði af Counter Strike.

 

 



-Nú er frost á Fróni frís í æðum blóð.


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 10:48:55 / gusti

Fólk er fífl

Friður

Við Embla erum löngu vöknuð, það er laugardagsmorgun og við búin að keyra Dísu í vinnuna og við erum bara í rólegheitum heima hjá okkur. Þetta er besti tími vikunnar, laugardags-og sunnudagsmorgnar. Allt er kyrrt og hljótt nema barnaefnið er á fullum styrk hjá henni Emblu svo hún missi nú ekki af neinu, þó hún sé farin að leika sér við eitthvað annað er stranglega bannað að lækka í Birtu og Bárði. Maður hlýtur að vera eldast því maður rankaði ekki við sér fyrr en seinni partinn um helgar þegar maður yngri og vitlausari.

Talandi um frið, ég var að horfa á Ísland í dag á NFS í gær þar sem Þorsteinn Joð var að taka við viðtal við herstöðvarandstæðinga sem fögnuðu í gærkveldi því að Kaninn væri að fara. Hann tók viðtöl við misgáfulegt fólk sem var statt í þessu geimi, þetta fólk sem eru herstöðvarandstæðingar er samansafn að liði sem finnur sér bara eitthvað til að mótmæla. Ein konan lagði mikla áherslu á frið í heiminum, gott og vel(eins og Geirlaugur heitinn sagði alltaf). Svo skaut hún sig í fótinn, hún fór að tala um aðild Íslendinga að NATO og fór að gagnrýna árás Bandaríkjamanna á Serba, þegar Kanarnir stöðvuðu Serba í því að drepa, pynta og nauðga minni þjóðarbrotum á Balkanskaganum. Í kjölfarið komst á friður á Balkanskaganum en þar hafði geysað stríð í nokkur ár. Stríðsglæpamaðurinn Milosevich var síðan settur í fangelsi og andaðist um daginn. Þetta sýnir að fólk sem eru ógurlegir friðarsinnar vita stundum ekkert hvað þau eru að tala um.

 

 



Peace out.


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 17:33:57 / gusti

Ich bin ein Berliner

Sæl og bless.

 

 



Það er nú langt síðan ég bloggaði síðast, en mikið að gera hjá manni og svona. Skólinn, boltinn og vill Fröken Embla ekki að ég hangi í tölvunni að blogga eitthvað þegar ég get verið að leika við hana. Það er helst að frétta að gsminn minn gaf upp öndina og þeir sem vilja ná í mig er bent á að hringja í heimasímann eða koma í heimsókn í Tröllagil 29 og þiggja kaffisopa og leysa með mér helstu vandamál sem mannkynið á við að glíma þá stundina. Annars er ágætt að vera í fríi frá þessum tímaþjófi, enginn frá bankanum að bögga mann með að bjóða manni hitt og þetta og liðið á gallup fær frí frá mér. Einnig hef ég komist að því að það er líf án gsm. Mér líður ágætlega, ennþá.

 

 



Annars er Dr. Phil byrjaður aftur á ská 1, þetta er eina mesta heimska sem ég hef séð í sjónvarpi. Aumingja Phil að troða einhverju common sense í þessa heimsku Kana. -Þú mátt ekki lemja krakkana sína. -Nei þú átt ekki að halda framhjá konunni þinni. White trash.

 

 



The god is back on track.

 

 



 

 




» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 17:36:30 / gusti

U-hu og málunum reddað

 

 



 

 



Já hver man ekki eftir því skemmtilega atviki þegar önnur framtönninn í mér brotnaði í Stykkishólmi um árið. Jakob Sigðurðsson kr-ingur rak þá olnbogann upp í mig. Náði ég að bíta kvikindið aðeins en tönnin gaf eftir. Vakti útlit mitt mikla kátínu meðal annara leikmanna í 10. flokki Tindastóls. Nú á fimmtudaginn var ég að gera mig kláran fyrir æfingaleik á móti Dalvík, er ég ætlaði að klæða mig úr markmannshönskunum flaug gamla brotið út á völl. Nú voru góð ráð dýr, 2 dagar í árshátíð Háskólans á Akureyri og karlinn mátti ekki við miklum skakkaföllum útlitslega (samkvæmt Ægi Jóhannssyni, Magnamanni). Hringdi ég því í tannlækni við  fyrsta hanagal, fékk ég tíma hjá tannlækni sem heitir Garðar, fínn tannlæknir. Hann setti u-hu lím(hver man ekki eftir gula u-hu líminu úr grunnskóla, í föndrinu) á tönnina og smellti upp í karlinn. 14 klst. eftir tannmissinn var ég aftur orðinn slarkfær og hættur að græta börn sem sáu mig brosa. Reyndar kippti Embla sér ekki mikið upp við útlitsbreytinguna á pabbanum,  orðin vön flestu sem snýr að mér og ekkert kemur henni lengur á óvart.

 

 



Árshátíð HA var síðan haldin síðasta laugardagskvöld, mikið var um dýrðir og skelltum við okkur félagarnir Orri.is, Pablo og Gummi Gunnies á þessa samkomu, bekkjasystra okkar til mikillar gleði. Þetta var mjög gaman, þar sem Þorsteinn Guðmundsson var veislustjóri og fór á kostum. Ég sjálfur tók þátt í skemmtiatriði þar ég fór í líki Siggu Beinteins í bakröddum í Eurovision laginu okkar og söng bakraddir. Flottur í leðurpilsinu. Við Þorsteinn ræddum aðeins málin baksvið, þvílíkur snillingur, ef einhver er fyndinn þá er það hann. Svo var tjúttað fram á nótt.

 

 



Málsháttur dagsins: „Fáum við aldrei hvíld”. Breki, Danmörku ‘98


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 17:23:32 / gusti

Hnakkafordómar

Ég hef ekki haft mikið álit á súkklaði brúnum strákum með aflitað hár. Þetta eru yfirleitt hnakka týpur sem blasta europopp og keyra um á hondu civic, ekki mín týpa. Enda er ég hvítur og fallegur karlmaður á Toyotu corollu. En hvað um það, þá var ég að horfa á íþróttaspjall á sýn um daginn og þá kom þessi Gilsnegger í þáttinn. Ég ákvað að gefa hnakkanum séns og kom maðurinn skemmtilega á óvart og stóð ég sjálfan mig að því að hlæja að þessum dreng sem ég hafði fyrir löngu búin að dæma sem leiðinda töffara, en gaurin sló á létta strengi og er greinilega húmoristi. Þannig að ég gaf þættinum „Kallarnir” tækifæri og horfði á síðasta þátt þar sem þeir breyttu Davíð Þór Jónssyni. Ég hló hvað eftir annað, Gilsnegger er alveg að springa úr egói en hann fer áætlega með það, eins og það sé einhver hæðni í öllu saman. Svo kom Geir Ólafs og toppaði allt saman með kynlífsfræðslu, þá komu tár ég hló svo mikið að Eurovision hetjunni Geir Ólafs sem var að sýna Davíð einhverja takta með uppblásna dúkku.  Ég ætla ekki að missa af næsta þætti.

 

 



Ég er búinn að vera kenna í Giljaskóla sem forfallakennari í ensku á unglingastiginu. Krakkarnir eru búnir að vera fínir, ég held að unglingarnir séu hreinlega að verða betri en þau voru í gamla daga. Það er búið að skammast svo mikið yfir unglingum undanfarin ár að komandi kynslóðir af unglingum verða eins og lömb. Þau eru allavega ekki jafn óþekk og Kári Ævars var, alltaf truflandi upptekna námsmenn eins og Bj og Biggarann.

 

 



Niðurstöður síðustu könnunnar sýna að menn eru ekki búnir að gleyma leiknum ótrúlega í Safmýrinni sem karlarnir unnu 2-1. Góðar minningar.

 

 



Málsháttur dagsins er: Ég er að drulla á mig úr svengu. Höf: Elí


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 11:16:15 / gusti

We're the champions, champions of Europe

Ég og Dísa fórum í magnaða ferð til Liverpool ásamt nokkrum skólafélugum mínum úr HA og sáum við tvö leiki. Wigan-Liverpool og Liverpool-Arsenal, 1-0 sigur í báðum leikjum, nokkuð gott bara. Hápunktur ferðarinnar fannst mér samt að fá að sjá Fowlerinn aftur, þvílíkur guð. Þetta var í alla staði skemmtileg ferð, eitthvað drukkið að bjór og étið vafasamar pylsur frá götusölum, en allur hópurinn kominn með hraustlega vindverki og nokkrar ferðirnar voru farnar á salernið hjá Gumma guinnes og Orra vindsprengju.

 

 



Nú er alvara lífsins tekin við aftur eftir þessa ljúfu daga í Liverpool-borg. Við Magnamenn lékum við Fjarðabyggð í gær í powerademótinu, ég vil ekki ræða mikið um þennan leik enda gerði ég mestu og fáranlegustu mistök sem ég hef gert síðan byrjaði að standa í rammanum og fengu við á okkur mark í kjölfarið. Leikurinn tapaðist 1-0 í kjölfarið. SHIT HAPPENS. Það sagði O.J. Simpsson allavega þegar hann var sýknaður. En alltaf gaman að vita að því að tap liðsins hafi alveg verið sér að kenna. Jæja þetta er búið.

 

 



Samt komst ég að því í Liverpool að ég kann norsku eftir nokkra bjóra. Ég talaði bara dönsku með íslenskum framburði. Af hverju er krökkum á Íslandi ekki kennt norska í stað dönsku í grunnskólum. Miklu léttara að skilja Norðmenn líka, jo jeg tro det at Robbie Fowler er beste spilleren i Liverpool men John Arne Riise er ogsa en godt spiller. Eftir þessa setningu var ég hinn besti Noregsvinur. En Liverpoolborg er full af Norðmönnum fyrir leiki. Pollararnir hafa alltaf haft nokkur kvikindi frá Norge í liðinu, ekki má gleyma Stig inge Bjornebye og björn ture kvarme, gæðaleikmenn.

 

 



Svo mega þeir sem lesa þetta commenta á þessa vitleysu, því það lítur illa út ef enginn hefur sagt sína skoðun og ekki ætla ég að byrja á því að líta illa úr þessu.

 

 



Luis Garcia, he drinks sangria, he came from barca.

 

 



 

 




» 12 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 17:50:18 / gusti

Go Jyllands Posten

Já það er langt síðan ég bloggaði en mig langar að skrifa um tvennt núna. Í fyrsta lagi er það drengurinn sem skrifaði bréf til Vísindavefsins og spurði þá hvort hann ætti að segja að hann hafi gúglað eitthvað á netinu. Þeir voru með eitthvað vesen þarna í gáfumannadeildinni við strákinn sem var með góða spurningu um íslenskatungu. Af hverju eru ekki fundinn upp góð orð eins og tölva. Það hlýtur að vera hægt að koma með gott orð fyrir að finna eitthvað á vefsíðum. Ég er með tvennt sem mér sjálfum finnst sniðugt en engum öðrum þarf að finnast það. Þegar maður er að vafra á veraldarvefnum ætti maður að vera að vefa og þegar maður segir frá því að maður hafi fundið eitthvað á netinu þá getur maður sagt að maður hafi vafið þetta. ( hvað er ég að rugla)

 

 



Svo eru það strákarnir sunnan og austan Miðjarðarhafsins sem eru brjálaðir yfir því að Jyllands Posten gerði grín af spámanninum Múhamed. Takið því aðeins rólega strákar. Þeir þurfa nauðsynlega að finna sér áhugamál. Hvað með fótbolta, bjór, konur, bíla, eða playstation. Ef Islamtrúarfólk er svona reitt þá vonandi yfirgefur það Norðurlönd, ekki bað ég þetta fólk um að búa hér á Norðurlöndum. Þessir menningarheimar geta ekki þrifist saman. Við erum of ólík, sjáið viðbrögð þeirra við smá gríni í dagblaði. Allra síst vill ég sjá Moskvu í Reykjavík, Steinunn borgarstjóri ég veit að þú ert í atkvæðaleit, hvað ætlar þú að sofa hjá Saddam Hussein næst.

 

 



You’ll never walk alone, Liverpool city here I come


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 10:40:50 / gusti

Slæm byrjun á góðum degi

Við Embla fórum í hraðbanka í morgun og kvikindið gleypti kortið mitt. Sagði að ég hefði slegið pinnr. of oft vitlaust. Ég sló það einungis einu sinni inn og var kominn í útektar dálkinn þegar kbbanki tók kortið mitt í sína vörslu. Svo var ég að skoða heimabanka minn þá er eins og það sé búið að borga leiguna fyrir mig og bifreiðagjöldin. S.s. Kbbanki er í ruglinu, kannski kominn vírus í kerfið og ég verð orðinn milljóner eftir helgi, það væri ekki verra. Erfitt að vera námsmaður á leið í menningarferð.

Á eftir er stórleikur í Boganum á Akureyri þegar Magni mætir Tindastólsmönnum. Jorgen hefur verið kallaður sérstaklega till enda þarf slíka stormcentara til að skora hjá Groddanum. Nei nei þetta verður bara hörkuleikur og vona ég að leikgleðin verði við völd.það verður skrítið að leika gegn Tindastól, eiginlega alveg fáranlegt.

Doninn verður 25 ára ára á þriðjudaginn og bar kappinn aldurinn vel og segir sjálfur að honum líði ekki degi eldri en 18 ára. Ritstjórn Sammy Lee óska Doninum til hamingju með þennan áfanga.

viva las vegas


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6